Í hreiðurgerð!Tinna Rut Torfadóttir

Já ég held að ég sé svo sannarlega komin í hreiðurgerð.. hehe.. hef mikla þörf fyrir að þrífa allt hátt og lágt.. get t.d ekki hugsað mér að fara að  þvo babyfötin fyrr en ég er búin að þvo allan annan þvott á heimilinu og skrúbba þvottahúsið.. hehe.. já dáldið klikkuð...Glottandi Hvað er málið með þetta veður.. rigning.. rigning.. ekki skemmtilegt!!
Ég er frekar ánægð með skjá 1 núna.. endursýna Beverly Hills 90210 og Melrose Place.. jíha.. þetta voru sko uppáhalds þættirnir mínir..þannig að frá og með 5. júní.. liggur Tinsí límd fyrir framan sjónvarpið frá 7-9 Svalur Brandon og Brenda og svo sæti Dylan.. úff hvað hann var sætur!! og svo Jake í Melrose Place var líka rosa sætur!!



Tjá tjá.. 36 vikna BumbanBrosandi

Menningarleg helgi!Tinna Rut Torfadóttir

Já var frekar menningarleg um helgina á föstudaginn þá skelltum við okkur með 10 manna hóp út að borða á Red Chili sem var mjög gaman.. og svo fórum við alveg afvelta í leikhús á fullkomið Brúðkaup.. frekar fyndið leikritBrosandiMæli alveg með því!!
Á föstudaginn gerðist það líka að Sif og Hlynur eignuðust lítinn prins.. Til hamingju með það elsku vinirGlottandi Hlakka mjög mikið til að sjá hann!
Á laugardaginn þá kusum við að sjálfsögðu og svo kíktum við á kosningaskrifstofuna hjá D-listanum í leit að einhverjum veitingum.. hehe. oooggg vá það var eins og við hefðum dottið inn í fermingarveislu.. ekkert smá flottar veitingar.. rjómatertur, heitir réttir og alless... eitthvað fyrir ólétta konu.. Hlæjandi Við vorum svo líka mjög ánægð með útkomu kosninganna hér í Hveragerði um kvöldið!!!
Í gær þá fórum við mæðgunar í leikhús á Ronju Ræningjadóttur.. við buðum ömmu Sísí með.. því Stebbi er frekar upptekinn núna í húsbyggingum.. alveg í essinu sínu.. þetta líka rokgengur.. spennandi!! En Ronju leikritið var rosalega flott og skemmtilegt.. Írena Rut var alveg heilluð allan tímann.. sátum líka á fyrsta bekk... munaði litlu að við fengum slefið yfir okkur.. neinei hehe! Sviðið var æði klettar.. blóm og fossar... mæli mjög með þessu leikriti!!! Svo enduðum við daginn á því að fara í grillveislu heima hjá Ömmu Sísí og afa Smára.. umm ekkert smá góður matur!!
Blogga meira seinna.. Glottandi
Tjá tjá!!!


Við mæðgur á Mallorca 2005

Hey alíúba!Tinna Rut Torfadóttir

Jæja helgin á enda og ný vika tekin við!
Helgin var nú frekar róleg hjá óléttri konu... híhí.. en við fórum til Elínborgar og Gísla að horfa á Júróvisjón á laugardaginn og þangað komu líka Valgý, Birkir og Ívar.. mjög skemmtilegt.. kallarnir áttu að grilla eitthvað gott handa mjög svo svöngum konum.. en þeim fannst eitthvað kalt úti.. híhí.. svo þeir enduðu á því að bruna á Selfoss og kaupa mat hjá Menam.. sem var mjög gott! Við óléttu borðuðum allavegana á okkur GAT.. Ullandi Finnland var í milklu uppáhaldi hjá okkur flestum.. nema kannski Írenu... hún var nú bara hálf hrædd við þessi skrímsli!! en strákarnir Ívar og Runólfur voru sko að fíla þá í tætlur!! Svalur Svo var bara farið óvenju snemma heim.... svona miðað við aldur og fyrri djömm.. en maður er nú komin næstum á steypirinn.. þannig að rúmið beið eftir manni..!
Á föstudagskvöldinu fórum við í bíó í Lúxus sal á Da vinci code.. bara ágætis mynd.. soldið þung.. maður verður að fylgjast mjög vel með í henni.. en sætin voru sko ekki að svíkja okkur.. ekkert smá næs.. væri alveg til í að eiga einn svona stól heima í stofu...Glottandi
Gærdagurinn fór svo að mestu í tiltekt.. og annað skemmterí..fengum svo góða gesti.. Bellu, Atla og sætu Ísold Freyju já og sjálfsögðu bumbuna líka.. bumban stækkar og stækkar hjá Bellu.. frekar gaman!! Svo var kvöldinu eytt fyrir framan TV.. jú besta sjónvarpskvöldið á sunnudagskvöldum.. Cold Case og 24!!
Svo er það bara sónar á morgun.. get varla beðið... hehe.. svo spennt að vita hvað litli prins er orðinn stór!

Hasta la vista baby!!





















Bumbur í Apríl
Sif 32 vikur, Valgý 25 vikur og Ég 28 vikur

Jeijjeij!Tinna Rut Torfadóttir

Frekar glöð í dag... tvær einkunnir komnar í hús og ég fékk 8 í Siðfræðinni og 8,5 í íslensku...Svalur Frekar sátt með það!! Stebbi var að ná í sínar einkunnir í dag... hann náði öllu með glans.. eintómar áttur og níur afrekaði það að klára 21 einingu.. á þessar önn.. mjög stolt af kallinum!Glottandi
Brunuðum aðeins í bæinn í morgun til að velja glugga í nýja húsið.. valdi mjög flotta glugga og hurðar.. kíktum svo við í Baby Sam og keyptum okkur bastvöggu.. mjög svo sæta!
Var í skoðun hjá Sigrúnu í gær og allt leit mjög vel út.. hafði ekkert þyngst síðan síðast.. en það hefur nú ekki gerst áður.. hehe.. en hún hélt að litli prins væri kominn með höfuðið niður og rassinn upp.. sem er frábært!! Hjartslátturinn var 150-160 slög.. frekar stelpulegur hehe! Fyndið ef þetta yrði svo stelpa eftir allt saman.. búið að versla ALLT blátt!! heheBrosandi
Fór í litun, plokkun og klippingu í gær.. svo eru það bara neglurnar á morgun.. þá er extreamið búið í bili.. hehe.. !
Svo er það bara Eurovision á morgun.. úff hvað ég er komið með MIKIÐ leið á henni Sylvíu Nótt.. þetta er alveg komið gott!!!

Tjá tjá.. Bumban!Svalur
Við skvísurnar

Skvísur í Desember 2005

Í sól og sumaryl!Tinna Rut Torfadóttir

Hellú
Já ekkert smá næs að vera í fríi.. hálf skrítið samt.. hef alltaf byrjað að vinna strax eftir próf.. en þetta er bara næsHlæjandi Nú er maður farinn að tékka á einkunnum.. vonandi fara þær að streyma inn.. er frekar spennt að vita hvernig mér gekk.. en ef þetta hefur allt gengið upp þá á ég bara eftir að fara í 1 próf við HA.. jibbí... frekar næs! Þetta er allt að styttastGlottandi
Stebbi minn átti afmæli í gær.. og vorum við með smá afmæliskaffi fyrir fjölskylduna.. frekar gott.. ég og Írena gáfum honum Diesel buxur, bol og töffara jakka í afmælisgjöf.. þvílíkur töffari núna.. heheSvalur
Svo er ég að fara á fullt núna að gera allt klárt fyrir litla prins.. finna vöggu og meiri föt og svona.. bara gaman!! Mér finnst ég vera núna orðin frekar stór.. eins og hvalur.. hlakka mikið til þegar ég fæ litla prins í hendurnar!
Núna er ég á fullu að finna til það sem ég þarf fyrir fæðingarorlofið.. ætla sækja um það tomorrow.. gott þegar það er frá!
Sónar eftir viku.. can´t wait!!!Glottandi

Hasta la vista baby!

Tinsí


Írena Rut á Mallorca 2005
Írena Rut Sæta á Mallorca 2005

Að mygla!Tinna Rut Torfadóttir

Það ætti að banna svona gott veður á prófatíma...Skömmustulegur ekkert smá gott veður úti bara alveg eins og á spáni! En ég er nú mest megnis búin að sitja inni og læra og læra.. ótrúlega erfitt sem ég er að læra núna.. mannslíkaminn er ferlega flókinn.. heheÓákveðinn Svo er annar höfuðverkur sem fylgir þessa dagana en það er um hvað ég á að skrifa í B.ED ritgerðinni minni...´játs.. en ég þarf að ákveða efni og leiðbeinanda áður en þessari önn lýkur.. úffpúff.. hugmyndir vel þegnar híhíGlottandi 
Jæja ætla að halda áfram að læra... get ekki beðið þangað til á föstudaginn kl 17:00 jíha!Hlæjandi

Tjá tjá Tinsí.. only 7 weeks and 4 days to go go go Ullandi

Alltaf að reyna! híhíTinna Rut Torfadóttir

Já svona er þetta þegar maður á að vera að læra fyrir próf! Þá finnur maður sér alltaf eitthvað annað að gera híhí!Glottandi Ég rakst á þetta bloggerísystem og ákvað að reyna að halda úti bloggsíðu!
Annars er ég bara á kafi í prófum núna.. búin með 2 og gekk bara vel í þeimHlæjandi en erfiðasta prófið er eftir og það er á föstudaginn.. líffræði mannsins.. úffpúff.. kann ekki sjitt!!! En eftir það þá er Tinsí komin í sumarfrí JEIJEIJJEIJSvalur Og þá ætla ég sko að dunda mér við að undibúa komu litla prins.. sko nóg eftir að gera þar! En já bumban stækkar og stækkar og stækkar.. veit ekki hvar þetta endar híhí.. en það eru only 8 weeks to go!! svo þetta sannarlega styttist... fer í 34 vikna sónar eftir 2 vikur og það verður spennandi að sjá hvað litli prins er orðinn stór!

En já ætli ég fari ekki að athuga hvernig meltingarkerfið í okkur er uppbyggt.. skemmtilegt?? NOT!!!Öskrandi

En gangi ykkur vel í prófum skvísur.. sem eruð í prófum.. hlakka til að heyra í ykkur eftir próf.. er að verða einhverf hérna híhí!Fýldur

Tjá tjá.. Tinsí

Auglýsing